Skráning í Texas scramble styrktarmót Dalbúa og DANCO er til kl. 20:00 föstudaginn 3. september.
Ef þið eruð ekki með meðspilara er hægt að senda skeyti á gisli@igf.is og við gerum hvað við getum til þess að finna meðspilara. Einnig munum við reyna að verða við séróskum um holl til þess að spila með.
Fyrir mót mun DANCO bjóða upp á smá bakkelsi og kaffi en þeir eru styrktaraðilar þessa móts og klúbbsins okkar og eiga þeir bestu þakkir skildar.
Það er stefnir í þetta fína veður og mætingu hjá okkur í styrktarmóti Dalbúa og DANCO laugardaginn næsta.Skráning og frekari upplýsingar er að finna hér:
Opna Laugarvatns Fontana mótið fór fram laugardaginn 14. ágúst í blíðskapar veðri. Mótið var fjölmennt og var ræst upp af öllum teigum með tveimur hollum á fjórum brautum sem gekk svona líka ljómandi vel.
Mótið er haldið í samstarfi við einn af aðal styrktaraðilum Dalbúa, Laugarvatn Fontana.
Keppt var í punktakeppni karla og kvenna með fullri forgjöf.
Veglegir vinningar voru veittir fyrir fyrstu þrjú sætin bæði í karla- og kvennaflokki í boði Laugarvatn Fontana, auk þess sem veitt voru verðlaun fyrir lengsta upphafshögg karla og kvenna á 3. braut og fyrir að vera næst holu í upphafshöggi á 5/14 og 8/17 holum. Einnig var dregið úr skorkortum þeirra sem höfðu ekki unnið til verðlauna.
Þökkum öllum sem tóku þátt í mótinu fyrir frábæran dag og óskum öllum vinningshöfum til hamingju.
Skráning í Fontana mótið okkar sem fram fer á laugardaginn er til kl. 20:00 á morgun föstudag. Skráning og nánari upplýsingar er að finna hér: GolfBox Tournament.
Okkur er enn lofað góðu veðri og er ákveðin hætta á að þátttakendur verði brúnir og sællegir eftir daginn.
Skemmtilegasta golfmótið okkar fer fram laugardaginn 14. ágúst.
Ræst er á öllum teigum kl. 10:00.Um er að ræða 18 holu punktamót þannig að allir eiga jafna möguleika á að vinna til fjölmargra vinninga sem Fontana, einn af styrktaraðilum Dalbúa, er með á boðstólnum.
Skráning er hér fyrir neðan.Gaman væri að sjá ykkur sem flest.
Glæsilegt kvennamót Lavera kvennamót Dalbúa fór fram laugardaginn 17. júlí í flottu golf veðri.
Valgerður Sveinbjörnsdóttir sigraði mótið, Ása Baldvinsdóttir varð í öðru sæti og Áslaug Guðmundsdóttir í því þriðja. Önnur úrslit voru svo þannig að Jóna HJálmarsdóttir var með lengsta högg á þriðju braut, Theodóra Friðbjörnsdóttir næst holu á fimmtu braut og Kristín Karlsdóttir næst holu á 8. braut. Allar konur fengu svo glæsilegar teiggjafir. Í lok móts var svo í boði að kaupa súpu á hagstæðu verði sem Bryndís formaður hafði útbúið.
Mótanefnd þakkar öllum þessum frábæru konum sem tóku þátt fyrir komuna og óskar öllum verðlaunahöfum til hamingju með árangurinn. Við minnum svo á að næsta golfmót verður Fontana golfmótið þann 14. ágúst.
Að lokum þá þökkum við umboðsaðila Lavera kærlega fyrir glæsilega og veglega vinninga.
Meistaramót Dalbúa fór fram helgina 10 og 11. júlí í blíðskapar veðri og eru Magnús Gunnarsson og Sigrún María Ingimundardóttir klúbbmeistarar 2021. Leikinn var höggleikur með og án forgjafar.
Úrslit í höggleik var þannig að Magnús Gunnarsson var í 1. sæti hjá körlum á 185 höggum og Sigrún María Ingmundardóttir í 1. sæti hjá konum á 187 höggum. Í 2. sæti í höggleik voru svo Ragnar Haraldsson og Magrét Björk Jóhannsdóttir og í 3. sæti urðu svo Sigurður Jónsson og Ása Þorkelsdóttir. Í höggleik með forgjöf voru svo Ragnar Haraldsson og Margrét Björk Jóhannsdóttir í 1. sæti, í 2. sæti urðu svo Þorvaldur Ingimundarson og Sigrún María Ingimundardóttir og í 3. sæti enduðu svo Sigurður Jónsson og Bryndís Scheving. Lengsta upphafshögg á 3/12 braut hjá körlum var svo hjá Magnúsi Gunnarssyni og hjá konum var það Margrét Björk Jóhannsdóttir. Að lokum þá var Sigurður Jónsson með upphafshögg næst holu (1,3m) á 8/17 holu.
Stjórn og mótanefnd GD óskar öllum vinningshöfum til hamingju með góðan árangur og þakkar öllum þeim sem tóku þátt og minnir á kvennamótið sem fram fer næsta laugardag.
Almenn ánægja þátttakenda var með tveggja daga fyrirkomulag á mótinu og verður að örugglega endurtekið næsta ár.