Aðalfundur Golfklúbbs Dalbúa fer fram fimmtudaginn 26. nóvember kl. 19:30. Fundarboð hefur verið sent á tölvupóstföng skráðra félaga.
Takk fyrir frábært sumar
Ágætu Dalbúar
Nú haustar á okkar fallega landi sem þýðir eitt fyrir okkur í Golfklúbbnum Dalbúa, lokun vallarins. Um liðna helgi mættu nokkrir vaskir sveinar til þess að aðstoða mig við frágang á vellinum. Sorptunnur voru fjarlægðar af vellinum, teigmerkin flottu með nöfnum þeirra kvenna sem fóstra teigana sett í geymslu, vökvunarkerfið tekið inn ásamt fjarlægðarstikum og teigmerkingum og sitthvað fleira. Golfvöllurinn er því kominn í vetrarbúning með vetrarteigum og flötum. Það er gert til þess að hlífa þessum viðkvæma hluta vallarins eins og kostur er og gefa ykkur félagsmönnum tækifæri til þess að spila á vellinum eins lengi og veður leyfir.
Munið bara að ,,tía“ upp til þess að hlífa grasinu sem úr þessu fer að verða afar viðkvæmt fyrir kylfunum. Sumarið leið furðu fljótt við leik og störf. Ásókn á völlinn okkar var mjög mikil og oft það mikil um helgar að boltarennan var smekkfull af golfboltum og biðin þ.a.l. oft ansi löng eftir að komast á teig. Flestir tóku því með bros á vör, sérstaklega þar sem veðrið lék oftar en ekki við okkur í Miðdalnum. Það er von mín að þið hafið notið sumarsins vel og haft margar ánægjustundir á golfvellinum okkar góða. Hlakka til að hitta ykkur hress og kát á nýju golfári.
Kærleiks kveðjur til ykkar, Bryndís Scheving, formaður GD


Lokamót Dalbúa með einhverju óvæntu
Þar sem sumri er farið að halla og stutt eftir af golftímabilinu langar okkur í stjórninni að hafa mót fyrir félagsmenn laugardaginn 19.09.2020. Ræst verður út á öllum teigum kl. 10:00.
Það væri gaman að hitta sem flesta, spila léttan og líflegan golfhring og enda daginn á grillveislu í skálanum okkar þar sem tækifæri gefst til þess að spjalla og skemmta sér saman.
Að þessu sinni verður golfmótið 9 holu punktamót og eiga því allir félagsmenn góða möguleika á verðlaunasætum!
Við endum daginn á grillveislu í skálanum okkar þar sem tækifæri gefst til þess að spjalla og skemmta sér saman.
Vegleg verðlaun. Bara dregið úr skorkortum.
Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna á þetta síðasta mót sumarsins og gera sér glaðan dag saman!
Allar nánari upplýsingar eru á golf.is
Nánari upplýsingar á golf.is eða í golfskála Dalbúa í Miðdal.

Bragi Dór og Sigurður Orri sigruðu Símamótið
Símamót Dalbúa fór fram síðustu helgi í blíðskapar veðri. Rúmlega 40 kylfingar tóku þátt í mótinu en allur ágóði af mótinu rennur til uppbyggingar á vellinum í Miðdal og til að styrkja starfsemi klúbbsins okkar. Leikjaform mótsins var Texas Scramble.
Úrslitið voru sem hér segir:
1. sæti. Bragi Dór Hafþórsson og Sigurður Orri Hafþórsson
2. sæti. Guðni Björnsson og Jón Jónsson
3. sæti. Ríkharður Hrafnkelsson og Katrín Herta Hafsteinsdóttir
Upphafhögg næst holu á 5/14 braut – Sólveig J. Haraldsdóttir (3,44 m)
Upphafshögg næst holu á 8/17 braut – Andri Tómas Gunnarsson (85 cm)
Lengsta upphafshögg kvenna á 3/12 braut – Sólveig J. Haraldsdóttir
Lengsta upphafshögg karla á 3/12 braut – Jón Gunnarsson.
Mótenefnd og stjórn GD þakkar öllum fyrir þátttökuna og óskar verðlaunahöfum til hamingju með árangurinn. Símanum færum við bestu þakkir fyrir glæsileg verðlaun og stuðning.
Hér fylgja með nokkrar myndir frá mótinu.






















Símamót Dalbúa fer fram á morgun
Það stefnir í fína þátttöku í Símamóti Dalbúa á morgun og er rétt að minna spilara á það að vera tímanlega á svæðinu þannig að hægt sé að koma öllum út á réttum tíma en ræst verður á öllum teigum kl. 10:00.
Skráning og nánari upplýsingar er að finna hérna. https://golfbox.dk/livescoring/tour/?language=1039#/competition/2450352/info
Góða skemmtun.

Símamót Dalbúa fer fram laugardaginn 29. ágúst
Stórskemmtilegt mót með glæsilegum verðlaunum í boði Símans. Leikformið er Texas Scramble. Ræst verður út á öllum teigum kl. 10:00 og eru keppendur beðnir að skrá liðið saman á rástíma (skráning rástíma er þó að eins til skráningar, þar sem allir verða ræstir út á sama tíma).
Vegleg verðlaun í boði Símans, en auk þess verða veitt verðlaun fyrir lengsta teighögg karla og kvenna á valinni braut og fyrir upphafshögg næst holu á par 3. brautum vallarins. Loks verður veglegur vinningur dreginn úr skorkortum keppenda (aðeins þeirra sem ekki hafa þegar unnið til verðlauna) Allur ágóði af mótinu rennur til uppbyggingar á vellinum Í Miðdal og til að styrkja starfsemi klúbbsins.
Skráning Golfbox lýkur 29.08.2020 kl 09:59. Nánari upplýsingar á golf.is eða í golfskála Dalbúa í Miðdal.
https://golfbox.dk/livescoring/tour/?language=1039#/competition/2450352/info

Örn Ólafsson og Kristín Þórisdóttir sigruðu Fontana golfmótið
Opna Laugarvatns Fontana mótið fór fram laugardaginn 15. ágúst.
Mótið er haldið í samstarfi við einn af aðal styrktaraðilum Dalbúa, Laugarvatn Fontana.
Keppt var í punktakeppni karla og kvenna með forgjöf.
Veglegir vinningar voru veittir fyrir fyrstu þrjú sætin bæði í karla- og kvennaflokki í boði Laugarvatn Fontana, auk þess sem veitt verða verðlaun fyrir lengsta upphafshögg karla og kvenna á valinni braut og fyrir að vera næst holu í upphafshöggi á par 3 brautum vallarins.
Þökkum öllum sem tóku þátt í mótinu fyrir góðan dag og vinningar verða sendir í pósti.
Sérstakar þakkir til Laugarvatn Fontana
Úrslit konur:
1.sæti – Kristín Þórisdóttir með 26 punkta
2.sæti – Laufey Valgerður Oddsdóttir 24 punktar
3.sæti – Heiðrún Hauksdóttir 21 punktur
Úrslit karlar:
1.sæti – Örn Ólafsson 33 punktar
2.sæti – Eyjólfur Óli Jónsson 32 punktar
3.sæti – Anthony Karl Flores 31 punktar
Lengsta högg kvenna á þriðju braut Anja Erla
Lengsta högg karla á þriðju braut Gestur Gunnarsson
Næst holu á 5./14. braut Örn Ólafsson
Næst holu á 8./17. braut Árni Páll Hafþórsson
Hér fylgja með nokkrar myndir.







Fontana golfmótið er næsta laugardag

Um leið og við minnum á skemmtilega Fontana golfmótið okkar næsta laugardag kl. 10:00 minnum við alla á að huga að eigin sóttvörnum og koma frísk heim.
Skráning á mótið er hér fyrir neðan:
https://golfbox.dk/livescoring/tour/?language=1039#/competition/2450421/info
Leiðrétting eftir meistaramót Dalbúa
Þau leiðu mistök voru gerð þegar tekin voru saman úrslit í höggleik á meistaramóti Dalbúa að rangt var lesið út úr niðurstöðu sem tekin var út á golfbox.
Hið rétta er að hjá konunum var í öðru sæti Petrína Freyja Sigurðardóttir en ekki Anna Svandís Helgadóttir. Búið er að tilkynna þessum góðu félögum um þetta og ganga allir sáttir frá boði og hefur þetta verið leiðrétt í tilkynningu eftir mótið.
Mótanefnd biður þær Petru og Önnu og félaga í GD innilega afsökunar á þessum mistökum.
Fontana mótið fer fram 15. ágúst.
Skemmtilegasta golfmótið okkar fer fram laugardaginn 15. ágúst. Ræst er á öllum teigum kl. 10:00.
Um er að ræða 18 holu punktamót þannig að allir eiga jafna möguleika á að vinna til fjölmargra vinninga sem Fontana, einn af styrktaraðilum Dalbúa, er með á boðstólnum.
Skráning er hér fyrir neðan.
https://golfbox.dk/livescoring/tour/?language=1039#/competition/2450421/info
Gaman væri að sjá ykkur sem flest.
Góða skemmtun.
