Ágætu Dalbúar,
Nú fer nýtt
golfsumar að nálgast, þrátt fyrir risjótta tíð um stundir, og því vert að huga
að því sem framundan er hjá klúbbnum okkar.
Það ber auðvitað
hæst að á þessu sumri verða þrjátíu ár liðin frá því að klúbburinn okkar var
stofnaður, og er fyrirhugað að halda upp á þau tímamót með ýmsum hætti. Þá eru
ýmsar framkvæmdir í bígerð; nú er hafinn undirbúningur að stækkun á flötinni á
9. braut, þá er fyrirhugað að breyta upphafshluta 1. brautar þannig að hún
verði að hluta leikin í brekkunni neðan núverandi brautarstæðis. Einnig er
stefnt að því að allur kargi milli brauta verði sleginn niður í leikhæð, sem
ekki hefur verið reyndin síðustu ár. Loks er fyrirhugað að sameina flatir 4. og
7. brautar, sem liggja nánast saman, og gera þannig stóra tvöfalda flöt fyrir
báðar brautirnar, líkt og sjá má á ýmsum golfvöllum.
Á síðasta ári voru
kynntar hugmyndir um tvöföldun teiga á öllum brautum þannig að hægt yrði að
leika völlinn sem 18 holu völl (sbr. tvöfalda teiga á Setbergsvelli í
Hafnarfirði). Að loknu sumri komst stjórn og aðalfundur þó að þeirri niðurstöðu
að fresta yrði slíkum verkefnum því mikilvægasta fjárfesting þessa árs yrði að
vera í nýrri kargasláttuvél, þar sem sú sem hefur verið notuð var á síðasta
snúning sumarið sem leið. Nú er unnið að kaupum slíkrar vélar, og stefnt að því
að hún verði komin í þjónustu klúbbsins fyrir vorið.
Allir sem léku völlinn á síðast sumri voru
sammála um að þrátt fyrir erfiðan vetur og vor hafi tekist að koma vellinum í
mjög gott form, einkum þegar leið á sumarið, og vöxtur tók við sér eftir hart
vor. Mikil ánægja var með umsjón Anthony Karls Flores og félaga hans, einkum
Eyjólfs Óla Jónssonar, með vellinum á liðnu ári, og mikið fagnaðarefni að hann
mun halda áfram að hafa umsjón með vellinum á komandi sumri.
– Þá mun ég
undirrituð halda áfram að annast rekstur skálans líkt og síðasta sumar, og
hlakka til að sjá ykkur í Miðdal og þiggja kaffisopa fyrir eða eftir góðan
hring á vellinum.
Rekstrarstaða
klúbbsins hefur verið þröng undanfarin ár, en batnaði nokkuð á síðasta ári, og
hefur klúbburinn því átt fyrir útgjöldum vetrarins (hita- og rafmagnskostnaði
o.fl.) og til undirbúnings vorverkanna. Í ljósi stöðunnar var ákveðið á
aðalfundi Dalbúa 29. nóvember sl. að hafa félagsgjöldin á þessu afmælisári
óbreytt frá liðnu ári. Sjá má hver gjöldin eru inn á vefsíðu klúbbsins (www.dalbui.is), en gjaldið fer
eftir þeim leiðum sem valdar eru (almennt félagsgjald, hjónagjald o.s.frv.).
Innheimtan verður með sama sniði og á síðasta ári, og verða gjalddagar nú þrír
og dreifast á 1. apríl, 1. maí og 20. maí. Verða greiðsluseðlar vegna
félagsgjaldsins settir inn í heimabanka félaga í Dalbúa á næstunni, og er miðað
við gjöld síðasta árs við niðurröðun, t.d. að tekið sé tillit til þess þegar
félagar eru með annan golfklúbb sem aðalklúbb. Ef einhverjar misfellur verða á
þessu er félögum bent á að snúa sér til gjaldkera, Eiríks Þorlákssonar (thorlakssone@gmail.com) og verður greiðsla
síðasta gjalddaga þá leiðrétt eins og við á.
Í ljósi reynslu
síðustu ára og þess að um afmælisár er að ræða stefnir stjórnin að því að golfmót
sumarsins verði með örlítið breyttu sniði og vonandi „félagavænni“. Rætt hefur
verið um að breyta fyrirkomulagi einhverra móta, en sú hugmynd hefur m.a. komið
upp að hafa sum þeirrra 9-13 holu mót. Félagar hafa verið að kalla eftir fjölbreyttara
fyrirkomulagi og getur það orðið skemmtileg nýbreytni hjá okkur.
Þá ber að nefna að
endurskoðaðar golfreglur gengu í gildi 1. janúar 2019, og fela þær í sér
talsverðar breytingar frá því sem verið hefur, eins og mörg ykkar hafið eflaust
tekið eftir. Stefnt er að því að bjóða upp á fræðslufund eða námskeið fyrir
félagsmenn vegna hinna nýju reglna við upphaf golfsumarsins, og verður það
kynnt nánar síðar.
Ég hlakka til að
starfa með ykkur á komandi afmælisári og hvet ykkur til að láta í ykkur heyra;
nú þegar vetur er að síga á seinni hlutann má reikna með að margir séu farnir
að hugsa sér til hreyfings og munda kylfurnar að nýju.
Kær kveðja,
Bryndís Scheving
formaður stjórnar.