Ágætu kylfingar

Þá er það komið að styrktarmóti golfklúbbsins Dalbúa og DANCO heildverslunar en það verður laugardaginn 4. september.

Um er að ræða 18 holu Texas scramble mót og er fólk beðið um að skrá sig sem lið og gefa upp með hverjum þau vilja helst spila í holli.

Við lofum góðri skemmtun og félagsskap.  Þetta verður geggjað.

Skráning og frekari upplýsingar er að finna hérna.

GolfBox Tournament

Guðbjörg Ingólfsdóttir og Bjarni Theódór sigruðu Fontana golfmótið

Opna Laugarvatns Fontana mótið fór fram laugardaginn 14. ágúst í blíðskapar veðri. Mótið var fjölmennt og var ræst upp af öllum teigum með tveimur hollum á fjórum brautum sem gekk svona líka ljómandi vel. 

Mótið er haldið í samstarfi við einn af aðal styrktaraðilum Dalbúa, Laugarvatn Fontana.

Keppt var í punktakeppni karla og kvenna með fullri forgjöf.

Veglegir vinningar voru veittir fyrir fyrstu þrjú sætin bæði í karla- og kvennaflokki í boði Laugarvatn Fontana, auk þess sem veitt voru verðlaun fyrir lengsta upphafshögg karla og kvenna á 3. braut og fyrir að vera næst holu í upphafshöggi á 5/14 og 8/17 holum.  Einnig var dregið úr skorkortum þeirra sem höfðu ekki unnið til verðlauna.

Þökkum öllum sem tóku þátt í mótinu  fyrir frábæran dag og óskum öllum vinningshöfum til hamingju.

Sérstakar þakkir til Laugarvatn Fontana

Úrslit konur:
1.sæti – Guðbjörg Ingólfsdóttir 39 punktar
2.sæti – Annar Sigríður Erlingsdóttir 38 punktar
3.sæti – Guðbjörg Rós Guðmundsdóttir 32 punktar

Úrslit karlar:
1.sæti – Bjarni Theódór Bjarnason 37 punktar
2.sæti – Bragi Dór Hafþórsson 37 punktar
3.sæti – Snæbjörn Stefánsson 34 punktar

Lengsta högg kvenna á þriðju braut Helga Friðriksdóttir

Lengsta högg karla á þriðju braut Knútur Bjarnason

Næst holu á 5./14. braut Pálmi Albert Dungal

Næst holu á 8./17. braut Anna Svandís Helgadóttir 

Hér fylgja með nokkrar myndir.

Skráning í Fontana mót

Skráning í Fontana mótið okkar sem fram fer á laugardaginn er til kl. 20:00 á morgun föstudag. Skráning og nánari upplýsingar er að finna hér: GolfBox Tournament.

Okkur er enn lofað góðu veðri og er ákveðin hætta á að þátttakendur verði brúnir og sællegir eftir daginn.

Fontana golfmótið verður 14. ágúst.

Skemmtilegasta golfmótið okkar fer fram laugardaginn 14. ágúst.

Ræst er á öllum teigum kl. 10:00.Um er að ræða 18 holu punktamót þannig að allir eiga jafna möguleika á að vinna til fjölmargra vinninga sem Fontana, einn af styrktaraðilum Dalbúa, er með á boðstólnum.

Skráning er hér fyrir neðan.Gaman væri að sjá ykkur sem flest.

GolfBox Tournament

Góða skemmtun.

Lavera kvennamótið fór fram 17. júlí

Glæsilegt kvennamót Lavera kvennamót Dalbúa fór fram laugardaginn 17. júlí í flottu golf veðri.


Valgerður Sveinbjörnsdóttir sigraði mótið, Ása Baldvinsdóttir varð í öðru sæti og Áslaug Guðmundsdóttir í því þriðja. Önnur úrslit voru svo þannig að Jóna HJálmarsdóttir var með lengsta högg á þriðju braut, Theodóra Friðbjörnsdóttir næst holu á fimmtu braut og Kristín Karlsdóttir næst holu á 8. braut. Allar konur fengu svo glæsilegar teiggjafir. Í lok móts var svo í boði að kaupa súpu á hagstæðu verði sem Bryndís formaður hafði útbúið.


Mótanefnd þakkar öllum þessum frábæru konum sem tóku þátt fyrir komuna og óskar öllum verðlaunahöfum til hamingju með árangurinn. Við minnum svo á að næsta golfmót verður Fontana golfmótið þann 14. ágúst.


Að lokum þá þökkum við umboðsaðila Lavera kærlega fyrir glæsilega og veglega vinninga.

Magnús Gunnarsson og Sigrún María Ingimundardóttir eru klúbbmeistarar 2021.

Meistaramót Dalbúa fór fram helgina 10 og 11. júlí í blíðskapar veðri og eru Magnús Gunnarsson og Sigrún María Ingimundardóttir klúbbmeistarar 2021. Leikinn var höggleikur með og án forgjafar.

Úrslit í höggleik var þannig að Magnús Gunnarsson var í 1. sæti hjá körlum á 185 höggum og Sigrún María Ingmundardóttir í 1. sæti hjá konum á 187 höggum. Í 2. sæti í höggleik voru svo Ragnar Haraldsson og Magrét Björk Jóhannsdóttir og í 3. sæti urðu svo Sigurður Jónsson og Ása Þorkelsdóttir. Í höggleik með forgjöf voru svo Ragnar Haraldsson og Margrét Björk Jóhannsdóttir í 1. sæti, í 2. sæti urðu svo Þorvaldur Ingimundarson og Sigrún María Ingimundardóttir og í 3. sæti enduðu svo Sigurður Jónsson og Bryndís Scheving. Lengsta upphafshögg á 3/12 braut hjá körlum var svo hjá Magnúsi Gunnarssyni og hjá konum var það Margrét Björk Jóhannsdóttir.  Að lokum þá var Sigurður Jónsson með upphafshögg næst holu (1,3m) á 8/17 holu.

Stjórn og mótanefnd GD óskar öllum vinningshöfum til hamingju með góðan árangur og þakkar öllum þeim sem tóku þátt og minnir á kvennamótið sem fram fer næsta laugardag. 

Almenn ánægja þátttakenda var með tveggja daga fyrirkomulag á mótinu og verður að örugglega endurtekið næsta ár.

Lavera kvennamót Dalbúa fer fram næsta laugardag

Lavera kvennamót Dalbúa fer fram næsta laugardag, 17. júlí kl. 10:00

Spilaðar verða 9 holur og fá allar konur flottar teiggjafir frá Lavera. Allir vinningar eru frá Lavera og eru sérlega glæsilegir.

Í lok móts verður súpa og léttar veigar í boði á sanngjörnu verði.

Nánari upplýsingar og skráning er að finna hér: GolfBox Tournament