Lokamót Dalbúa verður laugardaginn 17. september.

Ágætu Dalbúar

Þar sem sumri er farið að halla og stutt eftir af golftímabilinu langar okkur í stjórninni að hafa mót fyrir félagsmenn laugardaginn 17.09 2022. Ræst verður út á öllum teigum kl. 10:00.

Það væri gaman að hitta sem flesta, spila léttan og líflegan golfhring og enda daginn á grillveislu þar sem tækifæri gefst til þess að spjalla og skemmta sér saman og vökva aðeins kverkarnar. Að þessu sinni verður golfmótið 9 holu punktamót og eiga því allir félagsmenn góða möguleika á verðlaunasætum!

Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna á þetta síðasta mót sumarsins og gera sér glaðan dag saman!Allskonar verðlaun. Eitt og annað verður öðruvísi eins og stundum á lokamóti.

Skráning er inni á golfbox eins og venjulega.

„Flæðisker“ sigraði styrktarmót Dalbúa

Styrktarmót Dalbúa og DANCO fór fram laugardaginn 3. september í frábæru veðri.  26 lið eða 52 kylfingar voru skráðir í mótið en allur ágóði af mótinu rennur til uppbyggingar á vellinum í Miðdal og til að styrkja starfsemi klúbbsins okkar.  Leikjaform mótsins var Texas Scramble.

Skemmtilegt er að segja frá því að þrír ættliðir spiluðu saman í holli í mótinu en það voru þeir Sæmundur Árnason, Oddgeir Sæmundsson, Sindri Oddgeirsson og fylgdi Ragnar Þórisson svo með þeim til þess að fylla hollið.  Vegna fjölda í mótinu þá þurfið að ræsa 4 holl á þremur brautum en það rann ágætlega í gegn.

Úrslitin voru kynnt sem hér segir:

1. sæti.  „Flæðisker“ (Guðbjörg Rós Guðmundsdóttir/Þorvaldur Ingimundarson)

2. sæti.  „BBM“ (Páll Þórir Pálsson/Guðjón Valberg)

3. sæti.  „Bakkabræður“ (Oddgeir Sæmundur Sæmundsson/Sindri Snær Oddgeirsson)

Upphafhögg næst holu á 5/14 braut – Ingvaldur Ben Erlendsson (1.05 m)

Upphafshögg næst holu á 8/17 braut – Sigurður Árni Gunnarsson (26 cm)

Lengsta upphafshögg kvenna á 3/12 braut – Guðbjörg Rós Guðmundsdóttir

Lengsta upphafshögg karla á 3/12 braut – Sindri Snær Oddgeirsson

Í lokin var svo dregið úr nöfnum þeirra sem ekki höfuðu unnið til verðlauna um veglega vinninga.

Mótenefnd og stjórn GD þakkar öllum fyrir þátttökuna og óskar verðlaunahöfum til hamingju með árangurinn. DANCO færum við bestu þakkir fyrir glæsileg og fjölmörg verðlaun og útdráttarverðlaun og stuðning við klúbbinn okkar.

Hér fylgja með nokkrar myndir frá mótinu.

Styrktarmót Dalbúa og DANCO fer fram 3. september

Ágætu kylfingar

Þá er komið að styrktarmóti golfklúbbsins Dalbúa og DANCO heildverslunar en það verður laugardaginn 3. september.

Um er að ræða 18 holu Texas scramble mót og er fólk beðið um að skrá sig sem lið og gefa þannig upp með hverjum þau vilja helst spila í holli.

Við lofum góðri skemmtun og félagsskap.  Þetta verður geggjað.

Skráning og frekari upplýsingar er að finna hérna.

GolfBox Tournament

Sigrún María Ingimundardóttir og Ottó Leifsson sigruðu Fontana golfmótið

Opna Laugarvatns Fontana mótið fór fram laugardaginn 13. ágúst í blíðskapar veðri. Mótið var fjölmennt og var ræst upp af öllum teigum með tveimur hollum á fjórum brautum sem gekk svona líka ljómandi vel. 

Mótið er haldið í samstarfi við einn af aðal styrktaraðilum Dalbúa, Laugarvatn Fontana.

Keppt var í punktakeppni karla og kvenna þar sem karlar voru með hámarksforgjöf 28 og konur 36.

Veglegir vinningar voru veittir fyrir fyrstu þrjú sætin bæði í karla- og kvennaflokki í boði Laugarvatn Fontana, auk þess sem veitt voru verðlaun fyrir lengsta upphafshögg karla og kvenna á 3. braut og fyrir að vera næst holu í upphafshöggi á 5/14 og 8/17 holum en enginn náði því á 8/17.  Einnig var dregið úr skorkortum þeirra sem höfðu ekki unnið til verðlauna.

Þökkum öllum sem tóku þátt í mótinu  fyrir frábæran dag og óskum öllum vinningshöfum til hamingju.

Sérstakar þakkir til Laugarvatn Fontana

Úrslit konur:
1.sæti – Sigrún María Ingimundardóttir 33 punktar
2.sæti – Valgerður Sveinbjörnsdóttir 31 punktar
3.sæti – Ellen Sigurðardóttir 31 punktar

Úrslit karlar:
1.sæti – Ottó Leifsson 37 punktar
2.sæti – Úlfar Guðmundsson 37 punktar
3.sæti – Eyjólfur Óli Jónsson 35 punktar

Lengsta högg kvenna á 3/12 braut María Ingimundardóttir

Lengsta högg karla á 3/12 braut Úlfar Guðmundsson

Næst holu á 5/14 braut Sindri Oddgeirsson

Hér fylgja með nokkrar myndir.

Fontana golfmótið 2022 verður laugardaginn 13. ágúst.

Fontana golfmótið, sem er eitt af skemmtilegasta golfmótunum okkar, verður laugardaginn 13. ágúst.

Ræst er á öllum teigum kl. 10:00. Um er að ræða 18 holu punktamót þannig að allir eiga jafna möguleika á að vinna til fjölmargra vinninga sem Fontana, einn af styrktaraðilum Dalbúa, er með á boðstólnum. Einnig verður dregið úr skorkortum.

Gaman væri að sjá ykkur sem flest.

Skráning og frekari upplýsingar eru á golfbox: 

GolfBox Tournament

Lavera kvennamótið fór fram 23. júlí

Glæsilegt kvennamót Dalbúa og Lavera fór fram laugardaginn 23. júlí í flottu golf veðri.


Hafdís Ingimundardóttir sigraði mótið, Anna Svandís Helgadóttir varð í öðru sæti og Guðbjörg Ingólfsdóttir í því þriðja. Önnur úrslit voru svo þannig að Hafdís Ingimundardóttir var með lengsta lengsta teighögg á þriðju braut.  Við þetta tilefni var í fyrsta sinn afhentur farandbikar fyrir kvennamót Dalbúa, en gefandi bikarsins er Eygló Myrra Óskarsdóttir. Allar konur fengu svo glæsilegar teiggjafir.  Einnig var dregið úr nokkrum skorkortum um verðlaun frá Lavera og Ölgerðinni.  Í lok móts var svo í boði að kaupa gómsæta súpu á hagstæðu verði.


Mótanefnd þakkar öllum þessum frábæru konum sem tóku þátt fyrir komuna og óskar öllum verðlaunahöfum til hamingju með árangurinn. Við minnum svo á að næsta golfmót verður Fontana golfmótið þann 13. ágúst.


Að lokum þá þökkum við umboðsaðila Lavera kærlega fyrir glæsilega og veglega vinninga.

Úrslit meistaramóts GD 2022

Meistaramót Dalbúa fór fram helgina 16 og 17. júlí í ágætis veðri og eru Magnús Gunnarsson og Sigrún María Ingimundardóttir klúbbmeistarar 2022. Leikinn var höggleikur með og án forgjafar.

Úrslit í höggleik var þannig að Magnús Gunnarsson var í 1. sæti hjá körlum á 173 höggum og Sigrún María Ingmundardóttir í 1. sæti hjá konum á 194 höggum. Í 2. sæti í höggleik voru svo Anthony Karl Flores og Magrét Björk Jóhannsdóttir og í 3. sæti urðu svo Júlíus Símon Pálsson og Bryndís Scheving. Í höggleik með forgjöf voru svo Magnús Gunnarsson og Bryndís Scheving í 1. sæti, í 2. sæti urðu svo Örn Helgi Harðarson og Margrét Björk Jóhannsdóttir og í 3. sæti enduðu svo Sigurður Jónsson og Anna Svandís Helgadóttir. Lengsta upphafshögg á 3/12 braut hjá körlum var svo hjá Oddgeiri Sæmundi Sæmundarsyni og hjá konum var það Anna Helgadóttir.  Að lokum þá var Eyjólfur Óli Jónsson með upphafshögg næst holu (2,9 m) á 5/14 holu og María Ingimundardóttir næst holu (2,20 m) á 8/17 holu.   Í restina var svo dregið um fríspil á nokkrum völlum á sv horninu úr skorkortum þeirra sem voru á staðnum. 

Stjórn og mótanefnd GD óskar öllum vinningshöfum til hamingju með góðan árangur og þakkar öllum þeim sem tóku þátt og minnir á kvennamótið sem fram fer næsta laugardag. 

Almenn ánægja þátttakenda virðist með tveggja daga fyrirkomulag á mótinu og verður það örugglega endurtekið næsta ár.

Kvennamót Lavera og Dalbúa verður 23. júlí

Lavera kvennamót Dalbúa fer fram næsta laugardag, 23. júlí kl. 10:00. Spilaðar verða 9 holur og fá allar konur flottar teiggjafir frá Lavera.

Allir vinningar eru frá Lavera og eru sérlega glæsilegir. Í lok móts verður súpa og léttar veigar í boði á sanngjörnu verði.

Hér er hægt að skrá sig og fá frekari upplýsingar: GolfBox Tournament