FUNDARBOÐ:
AÐALFUNDUR GOLFKLÚBBS DALBÚA
Íþróttamiðstöðinni Laugardal (í Reykjavík) A-salur
fimmtudaginn 29. nóvember 2018 kl. 19:30
Dagskrá:
Samkvæmt 16. gr. laga félagsins:
Aðalfundur kýs fundarstjóra og ritara eftir tillögu stjórnar.
- Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á liðnu starfsári.
- Kynning á endurskoðuðum ársreikningi félagsins.
- Umræður um skýrslu stjórnar og ársreikning og hann borinn upp til samþykktar.
- Afgreiðsla tillagna til lagabreytinga.
- Tillögur sem borist hafa teknar til umræður og afgreiðslu.
- Ákveðið árgjald og önnur gjöld fyrir næsta starfsár.
- Kosning stjórnar og varamanna í stjórn, sbr. 10. gr.
- Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og eins til vara.
- Lögð fram fjárhagsáætlun næsta starfsárs.
- Önnur mál.
Tillögur til lagabreytinga þurfa að berast stjórn félagsins. Komi fram tillögur að lagabreytingum verða þær kynntar á heimasíðu félagsins – www.dalbui.is
Breytingar verða á stjórn eins og gerist í öllum félögum. Formaður hefur ákveðið að gefa áfram kost á sér til formennsku. Eins og ávallt hvetur stjórn félagsins félagsmenn til að gefa kost á sér til stjórnar- og nefndarstarfa fyrir næsta starfsár. Ef þið hafið áhuga eða vitið af áhuga á slíku vinsamlegast hafið samband við formann félagsins, Bryndísi Scheving, með tölvupósti (bryndisscheving@gmail.com) eða símleiðis (862 8995) sem allra fyrst.
Ný stjórn mun m.a. skipa í mótanefnd, vallarnefnd, aganefnd og forgjafanefnd að loknum aðalfundi. Mikið hefur mætt á stjórnarmönnum þar sem erfiðlega hefur gengið að manna ofangreindar nefndir, og væri skemmtilegt ef fleiri tækju þátt í því starfi sem nefndirnar vinna, einkum á því afmælisári sem er fram undan. Fyrir klúbb eins og Dalbúa er mikilvægt að sem flestir félagar taki þátt í starfinu og gefi kost á sér í stjórn eða nefndir. Reynslan sýnir að því betur sem nefndir eru mannaðar því minni tíma tekur að sinna þeim verkefnum sem nauðsynlegt er að vinna.
Hér með er skorað á félagsmenn að mæta á aðalfund félagsins, fylgjast með hvernig hefur gengið og taka þátt í frekari uppbyggingu golfklúbbsins, m.a. með því að gefa kost á sér í nefndar- eða stjórnarstörf, því margar hendur vinna létt verk. Eins og fyrr segir verður ekki skipað í nefndir á aðalfundi – það er verkefni stjórnar eftir fundinn – en þar gefst gott tækifæri til að ræða málin og efla félagsandann.
Að lokum vil ég sem fráfarandi formaður þakka ykkur öllum fyrir frábært samstarf á liðnum árum og ítreka að í sameiningu munum við halda áfram að gera góðan klúbb enn betri í framtíðinni.
f.h. stjórnar Golfklúbbs Dalbúa
Bryndís Scheving
formaður.