Lavera kvennamótið var haldið í dag í blíðskaparveðri. Sólin lét sjá sig konum til mikillar gleði og var hitinn um og yfir 18 ° gráður.
15 konur mættu til leiks og höfðu gaman að. Þær fóru allar sáttar heim með flottar snyrtivörur og sól í hjarta.
Úrslitin voru:
1. sæti Þórunn Jóna Hauksdóttir
2. sæti Rannveig Hjaltadóttir
3.sæti Bjarndís Lárusdóttir
Lengsta teighögg á 3.braut:
Berglind Ósk Geirsdóttir
Næst holu á 5.braut:
Sigurlaug J. Friðriksdóttir
Næst holu á 8.braut:
Kristín Mogensen