Aðalfundur Dalbúa 2022

Aðalfundur Dalbúa fór fram fimmtudaginn 8. desember

Á fundinum var kosinn nýr formaður, Gísli B. Ívarsson en Bryndís Schewing lætur nú af störfum sem formaður Dalbúa.  Aðrir sem kjörnir voru eru Ásbjörn Sveinbjörnsson og Eiríkur Þorláksson og svo koma nýjar inn í stjórn Anna Helgadóttir og Guðbjörg Ingólfsdóttir.  Varamenn sem kjörnir voru eru svo Helgi Einarsson og Bryndís Schewing. 

Í lok fundar fengu þau Bryndís og Hafþór Guðmundsson smá þakklætisvott fyrir störf þeirra fyrir klúbbinn en Hafþór segir nú skilið við trúnaðarstörf fyrir Dalbúa eftir margra ára starf en Bryndís verður áfram inni sem varamaður.

Öðruvísi lokamót Dalbúa

Lokamót Dalbúa var 17. september en hefð er fyrir því að allskonar rugl og öðruvísi sé í gangi í þessu síðasta golfmóti sumarsins.  Það var ekkert rugl í veðrinu en það lék við sinn fingur eins og fylgt hefur mótum sumarsins.

Sigurvegarar mótsins voru Guðbjörg Ingólfsdóttir hjá konum og Guðmundur Hauksson hjá körlum.

Dregið var svo úr öllum skorkortum þeirra sem tóku þátt en við náum að safna saman fjölmörgum glæsilegum verðlaunum frá styrktaraðilum og félögum og fengu allir vinning. Kærar þakkir til allra sem lögðu sitt af mörkum vegna vinninganna.

Eftir mótið voru grillaðir hamborgar sem boðið var upp á og var þar spjallaðu um eitt og annað í starfi klúbbsins okkar.

Við þökkum öllum kærlega fyrir þátttökuna í lokamóti Dalbúa og þökkum einnig fyrir góða þátttöku í golfmótum sumarsins.

Við sjáumst næsta sumar

Skráning í lokamót Dalbúa er til 20:00 í kvöld

Skráningu í lokamótið okkar lýkur í dag kl. 20:00 en það spáir fallegu golfveðri fyrir þennan tíma sumarsins.  

Eins og hefð er fyrir þá verður allskonar rugl í gangi hjá okkur á lokamóti og fullt af glæsilegum og skemmtilegum vinningum sem dregnir verða úr skorkortum.

Skráning og frekari upplýsingar er að finna hérna: GolfBox Tournament

Lokamót Dalbúa verður laugardaginn 17. september.

Ágætu Dalbúar

Þar sem sumri er farið að halla og stutt eftir af golftímabilinu langar okkur í stjórninni að hafa mót fyrir félagsmenn laugardaginn 17.09 2022. Ræst verður út á öllum teigum kl. 10:00.

Það væri gaman að hitta sem flesta, spila léttan og líflegan golfhring og enda daginn á grillveislu þar sem tækifæri gefst til þess að spjalla og skemmta sér saman og vökva aðeins kverkarnar. Að þessu sinni verður golfmótið 9 holu punktamót og eiga því allir félagsmenn góða möguleika á verðlaunasætum!

Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna á þetta síðasta mót sumarsins og gera sér glaðan dag saman!Allskonar verðlaun. Eitt og annað verður öðruvísi eins og stundum á lokamóti.

Skráning er inni á golfbox eins og venjulega.

„Flæðisker“ sigraði styrktarmót Dalbúa

Styrktarmót Dalbúa og DANCO fór fram laugardaginn 3. september í frábæru veðri.  26 lið eða 52 kylfingar voru skráðir í mótið en allur ágóði af mótinu rennur til uppbyggingar á vellinum í Miðdal og til að styrkja starfsemi klúbbsins okkar.  Leikjaform mótsins var Texas Scramble.

Skemmtilegt er að segja frá því að þrír ættliðir spiluðu saman í holli í mótinu en það voru þeir Sæmundur Árnason, Oddgeir Sæmundsson, Sindri Oddgeirsson og fylgdi Ragnar Þórisson svo með þeim til þess að fylla hollið.  Vegna fjölda í mótinu þá þurfið að ræsa 4 holl á þremur brautum en það rann ágætlega í gegn.

Úrslitin voru kynnt sem hér segir:

1. sæti.  „Flæðisker“ (Guðbjörg Rós Guðmundsdóttir/Þorvaldur Ingimundarson)

2. sæti.  „BBM“ (Páll Þórir Pálsson/Guðjón Valberg)

3. sæti.  „Bakkabræður“ (Oddgeir Sæmundur Sæmundsson/Sindri Snær Oddgeirsson)

Upphafhögg næst holu á 5/14 braut – Ingvaldur Ben Erlendsson (1.05 m)

Upphafshögg næst holu á 8/17 braut – Sigurður Árni Gunnarsson (26 cm)

Lengsta upphafshögg kvenna á 3/12 braut – Guðbjörg Rós Guðmundsdóttir

Lengsta upphafshögg karla á 3/12 braut – Sindri Snær Oddgeirsson

Í lokin var svo dregið úr nöfnum þeirra sem ekki höfuðu unnið til verðlauna um veglega vinninga.

Mótenefnd og stjórn GD þakkar öllum fyrir þátttökuna og óskar verðlaunahöfum til hamingju með árangurinn. DANCO færum við bestu þakkir fyrir glæsileg og fjölmörg verðlaun og útdráttarverðlaun og stuðning við klúbbinn okkar.

Hér fylgja með nokkrar myndir frá mótinu.

Styrktarmót Dalbúa og DANCO fer fram 3. september

Ágætu kylfingar

Þá er komið að styrktarmóti golfklúbbsins Dalbúa og DANCO heildverslunar en það verður laugardaginn 3. september.

Um er að ræða 18 holu Texas scramble mót og er fólk beðið um að skrá sig sem lið og gefa þannig upp með hverjum þau vilja helst spila í holli.

Við lofum góðri skemmtun og félagsskap.  Þetta verður geggjað.

Skráning og frekari upplýsingar er að finna hérna.

GolfBox Tournament

Sigrún María Ingimundardóttir og Ottó Leifsson sigruðu Fontana golfmótið

Opna Laugarvatns Fontana mótið fór fram laugardaginn 13. ágúst í blíðskapar veðri. Mótið var fjölmennt og var ræst upp af öllum teigum með tveimur hollum á fjórum brautum sem gekk svona líka ljómandi vel. 

Mótið er haldið í samstarfi við einn af aðal styrktaraðilum Dalbúa, Laugarvatn Fontana.

Keppt var í punktakeppni karla og kvenna þar sem karlar voru með hámarksforgjöf 28 og konur 36.

Veglegir vinningar voru veittir fyrir fyrstu þrjú sætin bæði í karla- og kvennaflokki í boði Laugarvatn Fontana, auk þess sem veitt voru verðlaun fyrir lengsta upphafshögg karla og kvenna á 3. braut og fyrir að vera næst holu í upphafshöggi á 5/14 og 8/17 holum en enginn náði því á 8/17.  Einnig var dregið úr skorkortum þeirra sem höfðu ekki unnið til verðlauna.

Þökkum öllum sem tóku þátt í mótinu  fyrir frábæran dag og óskum öllum vinningshöfum til hamingju.

Sérstakar þakkir til Laugarvatn Fontana

Úrslit konur:
1.sæti – Sigrún María Ingimundardóttir 33 punktar
2.sæti – Valgerður Sveinbjörnsdóttir 31 punktar
3.sæti – Ellen Sigurðardóttir 31 punktar

Úrslit karlar:
1.sæti – Ottó Leifsson 37 punktar
2.sæti – Úlfar Guðmundsson 37 punktar
3.sæti – Eyjólfur Óli Jónsson 35 punktar

Lengsta högg kvenna á 3/12 braut María Ingimundardóttir

Lengsta högg karla á 3/12 braut Úlfar Guðmundsson

Næst holu á 5/14 braut Sindri Oddgeirsson

Hér fylgja með nokkrar myndir.