Skráning í Fontana golfmótið er til kl. 20:00 á morgun

Skráning í Fontana mótið okkar sem fram fer á laugardaginn er til kl. 20:00 á morgun föstudag.

Skráning og nánari upplýsingar er að finna hér: GolfBox Tournament

Okkur er lofað ágætu veðri þó að hitastigið verði ekki of hátt og er ákveðin hætta á að þátttakendur verði brúnir og sællegir eftir daginn.