Lið DANCO sigraði styrktarmót Dalbúa

Styrktarmót Dalbúa og DANCO fór fram laugardaginn 4. september í ágætis veðri.  23 lið eða 46 kylfingar tóku þátt í mótinu en allur ágóði af mótinu rennur til uppbyggingar á vellinum í Miðdal og til að styrkja starfsemi klúbbsins okkar.  Leikjaform mótsins var Texas Scramble.

Gaman er að segja frá því að þrír ættliðir spiluðu saman í holli í mótinu en það voru þeir Sæmundur Árnason, Oddgeir Sæmundsson, Sindri Oddgeirsson og fylgdi Ragnar Þórisson svo með þeim til þess að fylla hollið.

Úrslitið voru sem hér segir:

1. sæti.  „DANCO“ (Sigurður Jónsson/Óskar Gísli Óskarsson)

2. sæti.  „Þvert á leið“ (Sindri Snær Oddgeirsson/Oddgeir Sæmundsson)

3. sæti.  „Vesturey“ (Anna Elín Bjarkadóttir/Jóhann Rúnar Björgvinsson)

Upphafhögg næst holu á 5/14 braut – Arna Hilmarsdóttir (56 cm)

Upphafshögg næst holu á 8/17 braut – Oddgeir Sæmundsson (1,46 m)

Lengsta upphafshögg kvenna á 3/12 braut – Laufey Erlendsdóttir

Lengsta upphafshögg karla á 3/12 braut – Gunnar Geir Gústafsson

Mótenefnd og stjórn GD þakkar öllum fyrir þátttökuna og óskar verðlaunahöfum til hamingju með árangurinn. DANCO færum við bestu þakkir fyrir glæsileg og fjölmörgum verðlaun og útdráttarverðlaun og stuðning við klúbbinn okkar.  Fulltrúar DANCO afþökkuðu vinninga en þáðu verðlaunapeningana. 

Hér fylgja með nokkrar myndir frá mótinu.