Meistaramót Dalbúa fór fram laugardaginn 11. júlí og eru Anthony Karl Flores og Sigrún María Ingimundardóttir klúbbmeistarar 2020. Leikinn var höggleikur með og án forgjafar.
Úrslit í höggleik án forgjafar var þannig að Antony Karl Flores var í 1. sæti hjá körlum á 82 höggum og Sigrún María Ingmundardóttir í 1. sæti hjá konum á 91 höggum. Í 2. sæti í höggleik voru svo Böðvar Þórisson og Petrína Freyja Sigurðardóttir, og í 3. sæti urðu svo Jón Hilmarsson og Heiðrún Hauksdóttir. Í höggleik með forgjöf voru Þorvaldur Ingimundarson og Petrína Freyja Sigurðardóttir í 1. sæti, í 2. sæti urðu svo Antony Karl Flores og Sigrún María Ingimundardóttir og í 3. sæti enduðu svo Böðvar Þórisson og Anna Svandís Helgadóttir. Lengsta upphafshögg á 3/12 braut hjá körlum var svo hjá Ragnari Þórissyni og hjá konum var það Sigrún María Ingimundardóttir.
Að lokum þá var Sævar Magnússon með upphafshögg næst holu á 8/17 holu og Jón Hilmarsson var svo næstur holu á 5/14.
Stjórn og mótanefnd GD óskar öllum vinningshöfum til hamingju með góðan árangur og þakkar öllum þeim sem tóku þátt og minnir á kvennamótið sem fram fer næsta laugardag.