Mót 2019

Jónsmessumót – 22. júní 2019

Hið stórskemmtilega Jónsmessumót Dalbúa hefur verið fastur liður í dagskrá golfsumarsins. Að þessu sinni er brugðið af vananum og verður spiluð 18 holu keppni eftir svonefndum Greensome-reglum.

Þetta er skemmtilegur og léttur leikur sem fer þannig fram að tveir spila saman í liði, báðir slá upphafshögg og er síðan betri boltinn leikinn. Sá sem átti verri boltann í upphafshögginu slær betri boltann, við næsta högg slær sá sem átti betri boltann í upphafi og svo koll af kolli. Þetta er hraður leikur en fjörugur.

Við lofum skemmtilegu móti í frábærum félagsskap!

Ræst verður út af öllum teigum stundvíslega klukkan 10:00.

ATH: Keppendur sem vilja spila saman í holli eru beðnir um að skrá sig saman á rástíma en munið að rástíminn er einungis til skráningar.

Mótsgjald: 3.000 kr.

Meistaramót – 13. júlí 2019

Meistaramót Dalbúa fer fram laugardaginn 13. júlí 2019, þar sem leikinn verður höggleikur og með og án forgjafar. Aðeins verður einn leikdagur.

Keppt verður í karla- og kvennaflokkum.

Sá keppandi sem stendur uppi með fæst högg í höggleik án forgjafar hlýtur titilinn klúbbmeistari Dalbúa 2019.

Jafnframt verða veitt sérstök verðlaun fyrir besta skor í höggleik með fullri forgjöf. Þessi keppni er ætluð til þess að mótið verður jafnara og meira spennandi fyrir marga almenna félagsmenn og gætu margir staðið uppi sem sigurvegarar í þessum flokki. 

Mótanefnd vonar að með þessari breytingu skrái fleiri félagsmenn sig til keppni í mótinu á þessu afmælisári klúbbsins, enda þurfa keppendur ekki að hafa áhyggjur af því að eiga ekki roð í þá bestu með þessu keppnisfyrirkomulagi, því allir spila miðað við eigin forgjöf og eiga því allir möguleika á að fá verðlaun.

Skráning í mótið fer fram á www.golf.is

Allir keppendur verða ræstir út á 1. teig frá kl. 10:00 að morgni. Upplýsingar um rástíma keppnisdags verða birtar á www.golf.is og í golfskálanum í Miðdal frá kl. 19:00 föstudaginn 12. júlí.

Allir félagsmenn eru hvattir til að láta sjá sig og taka þátt í þessu skemmtilega móti. 

Þátttaka félagsmanna í meistaramótinu verður ókeypis í tilefni af 30 ára afmæli klúbbsins.

Kvennamót Dalbúa og Lavera – 20. júlí 2019

Kvennamót Dalbúa hafa notið vinsælda síðustu ár, enda allar konur velkomnar.

Keppnin er punktakeppni með forgjöf, og spilaðar verða 9 holur (1 hringur).

Félagskonur eru hvattar til að fjölmenna og taka með sér vinkonur og aðrar kátar konur.

Skráning á golf.is eða í golfskálanum í Miðdal. Allir keppendur verða ræstir út á sama tíma, kl. 11:00, og eru keppendur beðnir að mæta tímanlega.

Veglegar snyrtivörur frá Lavera verða veittar í teiggjafir, og fjöldi glæsilegra verðlauna er í boði.

  1. verðlaun: Dekur snyrtivörupakki frá Lavera.
  2. verðlaun: Glæsilegur snyrtivörupakki frá Lavera.
  3. verðlaun: Flottur snyrtivörupakki frá Lavera.

Einnig verða veitt verðlaun fyrir lengsta teighögg á valinni braut og fyrir upphafshögg næst holu á par 3 brautum.

Konur, njótum dagsins saman í góðum félagsskap!

Súpa og léttar veigar að leik loknum á sanngjörnu verði.

Mótsgjald 4.000 kr.

Opna Laugarvatns Fontanamótið – 27. júlí 2019

Eitt skemmtilegasta mót sumarsins ár hvert er haldið í samstarfi við einn af aðalstyrktaraðilum Dalbúa, Laugarvatn Fontana.

Keppt verður í punktakeppni karla og kvenna með forgjöf. Hámarksleikforgjöf karla verður 24 og hámarksleikforgjöf kvenna 28. 

Mótið hefst kl. 10:00 stundvíslega og verður ræst út af öllum teigum. Keppendur eru beðnir um að skrá sig á netinu og mæta tímanlega á keppnisdegi. 

ATH: Keppendur sem vilja spila saman í holli eru beðnir um að skrá sig saman á rástíma en munið að rástíminn er einungis til skráningar.

Veglegir vinningar verða veittir fyrir fyrstu þrjú sætin bæði í karla- og kvennaflokki í boði Laugarvatn Fontana, auk þess sem veitt verða verðlaun fyrir lengsta upphafshögg karla og kvenna á valinni braut og fyrir að vera næst holu í upphafshöggi á par 3 brautum vallarins.

Mótsgjald: 4.500.-

30 ára afmælismót Golfklúbbsins Dalbúa – 17.ágúst 2019

Nánari upplýsingar verða gefnar um mótið þegar nær dregur

Leikform verður Texas Scramble, og leiknar verða 18 holur.

Styrktarmót Símans og Dalbúa – 31. ágúst 2019

Stórskemmtilegt mót með glæsilegum verðlaunum í boði Símans.

Leikformið er Texas Scramble deilt með 3, þar sem hámarksforgjöf karla er 28 og hámarksforgjöf kvenna er 34; vallarforgjöf beggja keppenda er lögð saman og deilt í með þremur. – Keppnisforgjöf liðs getur þó ekki orðið hærri fyrir viðkomandi lið en þess keppanda sem er með lægri vallarforgjöfina (Athugið: Ekki taka mark á forgjöfinni sem birtist við skráningu á golf.is, þar sem hún er ekki í takt við ofangreinda reikniformúlu).

Athugið: Ekki er hægt að vinna til verðlauna nema hafa löglega forgjöf.

Ræst verður út á öllum teigum kl. 10:00 og eru keppendur beðnir að skrá liðið saman á rástíma (skráning rástíma er þó að eins til skráningar, þar sem allir verða ræstir út á sama tíma).

Allir keppendur fá teiggjöf fyrir mót og hamborgara að hætti hússins að móti loknu í boði Símans .

Verðlaun:

  1. – 3. sæti: Vegleg verðlaun í boði Símans, en auk þess verða veitt verðlaun fyrir lengsta teighögg karla og kvenna á valinni braut og fyrir upphafshögg næst holu á par 3. brautum vallarins. – Loks verður veglegur vinningur dreginn úr ÖLLUM skorkortum keppenda.

Mótsgjald er 4.500 kr. á hvern þátttakanda.

Þar sem um styrktarmót Dalbúa er að ræða er keppendum frjálst að greiða meira en mótsgjaldið; þá býðst fyrirtækjum að styrkja klúbbinn og greiða 10.000 kr. fyrir keppnislið í sínu nafni.

Allur ágóði af mótinu rennur til uppbyggingar á vellinum í Miðdal og til að styrkja starfsemi klúbbsins.

Lokamót Dalbúa – 14. september 2019

Lokamót Dalbúa á þessu afmæliári verður haldið laugardaginn 14. september.

Að þessu sinni verður um að ræða 9 holu punktamót og eiga því allir félagsmenn góða möguleika á verðlaunasætum!

Við endum síðan stuttan keppnisdag á léttri grillveislu í skálanum okkar þar sem tækifæri gefst til þess að spjalla og skemmta sér saman.

Vegleg verðlaun eru fyrir 1., 2. og 3.sæti. Einnig verða veitt sérstök verðlaun fyrir lengsta teighögg á 3. braut og nándarverðlaun á 5. og 8. braut.

Ræst verður út á öllum teigum klukkan 11:00

Verð: 6.000 kr. (golf + grill)

Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna á þetta síðasta mót sumarsins, og mega gjarna taka með sér gesti til að gera sér glaðan dag saman undir lok golfsumarsins!