Dagsetning: 30.06.2018
Þá er komið að einu skemmtilegasta móti sumarsins í samstarfi við einn af aðalstyrktaraðilum Dalbúa, Laugarvatn Fontana. Keppt verður í punktakeppni karla og kvenna með forgjöf. Hámarksleikforgjöf karla verður 24 og hámarksleikforgjöf kvenna 28.
Mótið hefst kl. 10:00 stundvíslega og verður ræst út á öllum brautum og eru keppendur beðnir um að skrá sig á netinu og mæta tímanlega á keppnisdegi.
ATH: Keppendur sem vilja spila saman í holli eru beðnir um að skrá sig saman á rástíma en munið að rástíminn er einungis til skráningar og verða keppendur ræstir út á öllum holum stundvíslega klukkan 10.
Veglegir vinningar verða veittir fyrir fyrstu þrjú sætin bæði í karla- og kvennaflokki í boði Laugarvatn Fontana, auk þess sem veitt verða verðlaun fyrir lengsta upphafshögg karla og kvenna næst holu á par 3 brautum vallarins.
Verðlaun í karla- og kvennaflokkum:
- verðlaun: Fjölskyldukort í Laugarvatn Fontana, gildir í eitt ár fyrir tvo fullorðna og fjögur börn.
- verðlaun: Einstaklingskort í Laugarvatn Fontana, gildir í eitt ár.
- verðlaun: 6 miða kort í Laugarvatn Fontana.
Verð: 4.000.-