Kæru félagar í Dalbúa og aðrir golfarar
Eins og kunnugt er þá lentum við í heitavatnstjóni með golfskálann okkar í janúar þannig að það varð altjón inni í skálanum.
Við höfum samið við verktaka með framkvæmdir á skálaunum og munu í leiðinni stækka skálann aðeins fram og bæta við einu salerni í anddyrið sem golfarar munu fagna en biðin gat stundum verið löng eins og kunnugir þekkja.
Við reiknum með að framkvæmdum við skálann ljúki um miðjan maí þannig að við verðum komin með allt á fullt hjá okkur í starfinu þegar sumarið kemur.
Golfsumarið 2026 er alveg að koma.

