Kæru félagsmenn!
Nú ættu allir að hafa fengið bréf varðandi félagsgjöld fyrir árið 2010. Við hvetjum alla félagsmenn til að greiða árgjaldið sem fyrst til að greiða fyrir framkvæmdum og gera starf klúbbsins öflugra.
Á aðalfundi Dalbúa 30. nóvember sl. var samþykkt að félagsgjöld ársins 2010 yrðu sem hér segir:
- Almennt árgjald 30.000 kr.
- Árgjald fyrir unglinga undir 18 ára aldri 7.500 kr.
- Árgjald félaga 70 – 74 ára 23.500 kr.
- Árgjald félaga 75 – 79 ára 17.000 kr.
- Árgjald félaga 80 ára og eldri 4.000 kr.
- Unglingar undir 14 ára greiða engin árgjöld. (Í öllum aldursmörkum hér að ofan er miðað við fæðingarár)
Veittur verður 10% afsláttur pr. árgjald fyrir félagsmenn og unglinga sem hafa sama lögheimili. (semsagt hjón fá 10% afslátt)
Við viljum sérstaklega benda á greiðsluleiðir sem fram kemur í bréfinu:
Hægt er að leggja inn á bankareikning félagsins
0586-26-1239, kt. 611189-1179.
Félagsmenn geta skipt greiðslunni í tvennt og til dæmis greitt 1. apríl og 1. maí eða þar um bil. Þeir sem ekki verða búnir að greiða fyrir 5. maí munu fá sendan greiðsluseðil með eindaga 15. maí eins og verið hefur.
Ef félagar hafa spurningar varðandi greiðslu, þá vinsamlegast hafið samband við gjaldkera Helgu B. Bragadóttur (helgab@isl.is)
GSM: 844 4082 eða Pál Ólafsson formann í síma 8562918. pallo@syrland.is
Með von um góðar undirtektir og gott golfsumar!
Stjórn Dalbúa
11.05.2012
VINNUDEGI DALBÚA LAUGARDAGINN 12. MAÍ FRESTAÐ UM VIKU - VERÐUR HALDINN 19. MAÍ
Í ljósi þess hve veðrið lítur illa út fyrir helgina – rigning og fremur svalt – og fram eftir næstu viku, hefur stjórnin ákveðið að fresta vinnudegi klúbbsins á vinnudegi á þessu vori um viku.08.05.2012
Myndir frá opnunarhelginni
Hér eru nokkrar myndir frá fyrstu helginni í sumar. Völlurinn virðist koma vel undan vetri.03.05.2012
Opnun hjá golfklúbbi Dalbúa vorið 2012
Nú er komið í ljós að völlurinn í Miðdal er í ótrúlega góðu standi svo snemma vors; ekkert frost er í vellinum, brautir og flatir eru þegar orðnar grænar, þó karginn eigi enn eftir að taka við sér, og allar vallarsvæðið hefur þornað vel eftir veturinn, þótt nokkuð hafi rignt á völlinn um liðna helgi.20.04.2012
Vinna við skemmu
Í vetur hafa staðið yfir framkvæmdir við að klæða bæinn í Miðdal og skemmuna/áhaldahúsið upp á nýtt og á þetta eftir að verða staðnum til fyrirmyndar í sumar. Sjá myndir

