Draumur Dalbúans - lokastaða
Þá er lokið öllum níu leikdögum í mótaröðinni Draumur Dalbúans, og lokastaðan orðin ljós, og tafla yfir hana fylgir hér með.
Það kom í ljós að síðustu tveir keppnisdagarnir nýttust ekki sem skyldi, m.a. vegna veðurs, en keppendur voru engu að síður duglegir yfir keppnistímann, og skiluðu felstir þeim árangri að einstakar brautir skiluðu sífellt lægri tölum.
Lokastaðan er sú, að meirihluti þátttakenda lék Draumahringinn undir sinni vallarforgjöf, allt að níu höggum, og því er ljóst að æfingin skapar meistarann og endurtekningin gefur tækifæri til að bæta árangurinn.
Mótanefnd vill þakka öllum þátttakendum fyrir að vera með í Draum Dalbúans; verði leikurinn endurtekinn að ári ber hins vegar að vona að fleiri félagsmenn noti sér tækifærið til að bæta leik sinn á vellinum með það að markmiði að Draumur Dalbúans verði sem lægstar tölur á skorkortinu.
Mótanefnd.
Hér má nálgast stöðuna (PDF)
11.05.2012
VINNUDEGI DALBÚA LAUGARDAGINN 12. MAÍ FRESTAÐ UM VIKU - VERÐUR HALDINN 19. MAÍ
Í ljósi þess hve veðrið lítur illa út fyrir helgina – rigning og fremur svalt – og fram eftir næstu viku, hefur stjórnin ákveðið að fresta vinnudegi klúbbsins á vinnudegi á þessu vori um viku.08.05.2012
Myndir frá opnunarhelginni
Hér eru nokkrar myndir frá fyrstu helginni í sumar. Völlurinn virðist koma vel undan vetri.03.05.2012
Opnun hjá golfklúbbi Dalbúa vorið 2012
Nú er komið í ljós að völlurinn í Miðdal er í ótrúlega góðu standi svo snemma vors; ekkert frost er í vellinum, brautir og flatir eru þegar orðnar grænar, þó karginn eigi enn eftir að taka við sér, og allar vallarsvæðið hefur þornað vel eftir veturinn, þótt nokkuð hafi rignt á völlinn um liðna helgi.20.04.2012
Vinna við skemmu
Í vetur hafa staðið yfir framkvæmdir við að klæða bæinn í Miðdal og skemmuna/áhaldahúsið upp á nýtt og á þetta eftir að verða staðnum til fyrirmyndar í sumar. Sjá myndir


